433

Ástarlífið vekur athygli: Er nú með Esteri - Var áður með trans konu

Mynd
Mbappe og Ester
Mynd

Kylian Mbappé hefur verið áberandi á Heimsmeistaramótinu í sumar, bæði fyrir frammistöðu sína með franska landsliðinu og fyrir stöðuga fjölmiðlaumfjöllun um einkalíf sitt.

Spænska leikkonan Ester Expósito er nýjasta nafnið sem hefur verið tengt við sóknarmann Real Madrid. Expósito varð heimsþekkt eftir hlutverk sitt í Netflix-þáttunum Elite og er með yfir 24 milljónir fylgjenda á Instagram.

Sögusagnir um samband þeirra Mbappé hófust eftir að þau voru sögð hafa sést saman í Madríd í lok febrúar og síðar í París í byrjun mars. Hvorki Mbappé né Expósito hafa þó staðfest að þau séu í sambandi og því ber að taka fréttunum með fyrirvara.

Mbappé hefur áður verið orðaður við nokkrar þekktar fyrirsætur. Árið 2022 var hann sagður eiga í sambandi við frönsku fyrirsætuna Ines Rau eftir að þau sáust saman á kvikmyndahátíðinni í Cannes og í fríi. Þær fregnir voru aldrei staðfestar opinberlega og síðar var fullyrt að sambandinu hefði lokið. Rau er þekkt í Frakklandi en hún er trans kona.

Skömmu eftir Heimsmeistaramótið í Katar var Mbappé einnig tengdur við belgísku fyrirsætuna Stephanie Rose Bertram. Hún hefur unnið fyrir stór vörumerki á borð við H&M og L’Oréal og var áður í sambandi með Gregory van der Wiel, fyrrverandi liðsfélaga Mbappé hjá Paris Saint-Germain.

Franski framherjinn hefur alla tíð haldið einkalífi sínu frá sviðsljósinu og hefur ekki tjáð sig opinberlega um þessar sögusagnir.