433

Treyja seldist á yfir 600 milljónir króna

Mynd
Treyja Pele frá því í úrslitaleiknum 1958.

Treyjan sem Pelé klæddist þegar hann skoraði tvö mörk í úrslitaleik heimsmeistaramótsins árið 1958 var seld á uppboði fyrir 4,9 milljónir Bandaríkjadala, eða um 620 milljónir króna.

Pele var aðeins 17 ára þegar Brasilía vann Svíþjóð 5-2 í úrslitaleiknum í Stokkhólmi og tryggði sér sinn fyrsta heimsmeistaratitil. Hann er enn í dag yngsti leikmaður sögunnar til að skora í úrslitaleik HM.

Aðeins treyja Diego Maradona úr leik Argentínu og Englands á HM 1986 hefur selst dýrari, en hún fór á 9,3 milljónir dala árið 2022. 

Pelé lést árið 2022, 82 ára að aldri.