433

Þessi dæmir úrslitaleikinn - Á stórleiki að baki

Mynd
Slavko Vincic. Getty Images

FIFA hefur staðfest að Slóveninn Slavko Vincic verði dómari úrslitaleiks heimsmeistaramótsins þar sem Spánn og Argentína mætast á MetLife Stadium á sunnudag.

Vincic, sem er 46 ára gamall, dæmir þar með sinn fjórða leik á mótinu. Hann hefur áður dæmt leiki Brasilíu og Marokkó, Jórdaníu og Alsír, auk leiks Mexíkó og Ekvador í 32-liða úrslitunum.

Vincic er einn reyndasti dómari Evrópu og dæmdi meðal annars úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2024 á milli Real Madrid og Borussia Dortmund, auk úrslitaleiks Evrópudeildarinnar árið 2022.

Hann hefur áður dæmt leiki beggja liða í úrslitunum. Á HM 2022 dæmdi hann óvænt 2-1 tap Argentínu gegn Sádi-Arabíu í riðlakeppninni, en hann var einnig með flautuna þegar Spánn lagði Ítalíu 1-0 á Evrópumótinu 2024.