Elliot Anderson hefur verið einn af lykilmönnum enska landsliðsins á heimsmeistaramótinu, en bróðir hans, Wil Anderson, hefur einnig vakið athygli – ekki síst vegna sambands síns við raunveruleikastjörnuna Uma Jammeh.
Wil kynntist Jammeh í bresku útgáfu Love Island árið 2024 og parið trúlofaði sig á síðasta ári. Jammeh starfar sem fyrirsæta en Wil hefur undanfarin ár keppt í hnefaleikum á vegum Misfits.
Parið hefur verið í Bandaríkjunum í sumar og stutt Elliot og enska landsliðið á HM.
Fjölskyldan varð fyrir miklu áfalli í apríl þegar móðir bræðranna, Helen Anderson, lést eftir skammvinn veikindi. Wil heiðraði minningu hennar með áhrifamiklum skilaboðum á samfélagsmiðlum þar sem hann þakkaði henni fyrir allan stuðninginn í gegnum árin.
Elliot gekk nýverið til liðs við Manchester City frá Nottingham Forest fyrir metupphæð, sem sögð er nema 116 milljónum punda, og varð þar með dýrasti breski knattspyrnumaður sögunnar.