Takehiro Tomiyasu er á leið til Venezia, nýliða í Serie A á Ítalíu.
Samkvæmt helstu miðlum hefur Venezia náð samkomulagi við japanska varnarmanninn um þriggja ára samning. Hann mun fá um eina milljón evra í árslaun auk árangurstengdra greiðslna.
Tomiyasu, sem er 27 ára, lék áður með Bologna á Ítalíu áður en Arsenal keypti hann árið 2021. Meiðsli settu þó strik í reikninginn á Englandi og eftir stutta lánsdvöl hjá Ajax er hann nú á leið aftur til Ítalíu.
Íslendingarnir Bjarki Steinn Bjarkason og Þórir Jóhann Helgason eru á mála hjá Venezia.