Vozinha, markvörður Grænhöfðaeyja, er ein af hetjum heimsmeistaramótsins sem nú er að klárast.
Hinn fertugi Vozinha vann hug og hjörtu allra með frábæri frammistöðu sinni og Grænhöfðaeyja, sem komu öllum á óvart, fóru taplausir í gegnum riðlakeppnina og duttu svo út gegn heimsmeisturum Argentínu í útsláttarkeppninni.
Mynd
Nú hefur sjávarlífræðingur, sem greinilega er mjög hrifinn af Vozinha, nefnt sjávarsnigil sem hann var að uppgötva eftir Vozinha.
Hér að ofan má sjá mynd af sniglinum. Vozinha hefur ekki tjáð sig um málið en finnst þetta án efa mikill heiður.