433

Skrifaði söguna á HM og kláraði svo menntaskólann

Mynd
Getty Images

Gilberto Mora hefur átt viðburðaríkt sumar. Eftir að hafa hjálpað Mexíkó í 16-liða úrslit heimsmeistaramótsins útskrifaðist þessi 17 ára gamli miðjumaður úr menntaskóla.

Mora, sem var yngsti leikmaður mótsins, tók við útskriftarskírteini sínu í Tijuana við mikinn fögnuð samnemenda sinna, sem veifuðu meðal annars pappaspjöldum með mynd af honum. 

Mora vakti mikla athygli á HM þar sem hann lék fjóra leiki og varð yngsti leikmaðurinn síðan Pele til að vera í byrjunarliði í leik í útsláttarkeppni á heimsmeistaramóti.

Frammistaða hans hefur ekki farið fram hjá stórliðum Evrópu, sem hann er nú orðaður við.