433

Sjáðu hvað Haaland sagði við leikarann í kjölfar þess að hafa hunsað hann

Mynd

Erling Braut Haaland, stjarna Manchester City og norska landsliðsins, virðist ætla að bæta fyrir það að hafa hunsað leikarann Tom Holland fyrr í sumar.

Meira
Haaland hunsaði heimsfrægan leikara sem vildi fara með honum út að borða

Holland sagði frá því á dögunum að hann hefði sent Haaland skilaboð á Instagram og boðið honum út að borða eftir að hafa séð hann á Formúlu 1-keppninni í Mónakó. Hann fékk hins vegar aldrei svar.

Nú hefur Haaland brugðist við.

„Kvöldverðarboðið er samþykkt , kannski aðeins of seint. Nefndu bara staðinn!“ skrifaði norski framherjinn léttur.

Tom Holland, sem hefur meðal annars leikið Spider Man, sagði þegar hann greindi frá atvikinu að það hafi verið hollt og auðmýkjandi fyrir sig að fá ekki svar frá Haaland til að byrja með.