Danski miðjumaðurinn Andre Romer er genginn í raðir KA. Romer kemur frítt frá Randers, þar sem samningur hans var runninn út.
Romer er reynslubolti sem lék einnig um árabil með Midtjylland og hefur þrisvar orðið danskur meistari.
Hann er yngri bróðir Marcel Romer, sem var á mála hjá KA í fyrra.
Akureyringar eru virkir á félagaskiptamarkaðnum um þessar mundir, en KA tilkynnti um komu Adams Ægis Pálssonar frá Val í gær.