433

Óhugnanlegt ástand í New York - Sjón er sögu ríkari

Mynd
Frá New York.

Mikil reykmengun frá skógareldum í Kanada hefur lagt gráleitan og appelsínugulan hjúp yfir New York-borg og víðar á norðausturhluta Bandaríkjanna. Yfirvöld hafa gefið út viðvaranir vegna loftgæða og hvatt fólk, sérstaklega viðkvæma hópa, til að halda sig innandyra.

Ljósmyndir frá New York sýna meðal annars Empire State-bygginguna og Chrysler-bygginguna huldar reyk, á meðan íbúar hafa víða gripið til þess að nota andlitsgrímur utandyra. Mengunin stafar af yfir 850 skógareldum í Kanada, en margir þeirra eru stjórnlausir.

Mynd

Ástandið hefur vakið spurningar um úrslitaleik heimsmeistaramótsins á morgun þar sem Argentína og Spánn mætast á MetLife Stadium, skammt frá New York. Enn sem komið er hefur FIFA ekki gefið til kynna að leiknum verði frestað eða breytt, en veðurspár gera ráð fyrir rigningu og breytingu á vindátt sem gæti hreinsað loftið verulega áður en flautað verður til leiks.

Sérfræðingar hafa þó bent á að samspil mikils hita og reykmengunar geti skapað heilsufarsáhættu fyrir leikmenn og áhorfendur ef loftgæðin batna ekki nægilega fyrir leikdag.