433

Maðurinn sem dæmir úrslitaleik HM var handtekinn í tengslum við vændis- og fíkniefnastarfsemi

Mynd
Slavko Vincic. Getty Images

Slavko Vincic, sem dæmir úrslitaleik heimsmeistaramótsins á morgun, var árið 2020 handtekinn í tengslum við húsleit sem tengdist fíkniefna- og vændisstarfsemi í Bosníu.

Slóvenski dómarinn var staddur á búgarði í Bijeljina í viðskiptaerindum þegar lögregla ruddist inn. Við aðgerðina fundust meðal annars kókaín, skotvopn og reiðufé. Vincic var yfirheyrður sem vitni en sleppt skömmu síðar þar sem hann tengdist rannsókninni ekki á nokkurn hátt.

„Ég var þarna fyrir algjöra tilviljun. Ég hafði samþykkt boð í hádegisverð sem reyndust stærstu mistök lífs míns. Lögreglan kom skyndilega á staðinn og síðan gerðist það sem gerðist,“ sagði Vincic síðar við slóvenska fjölmiðla.

Yfirmaður slóvenskra dómara staðfesti á sínum tíma að Vincic væri hvorki grunaður né sætti neinum málsmeðferðum og hefði einfaldlega verið á röngum stað á röngum tíma.

Síðan þá hefur Vincic fest sig í sessi sem einn virtasti dómari Evrópu. Hann dæmdi úrslitaleik Evrópudeildarinnar árið 2022 og úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2024.