433

Gefur í skyn að tíðinda sé að vænta af framtíð Salah

Mynd
Getty Images

Ramy Abbas, umboðsmaður Mohamed Salah, hefur gefið í skyn að tíðinda gæti verið að vænta af framtíð kappans.

Hinn 34 ára gamli Salah yfirgaf Liverpool í sumar eftir ótrúleg níu ár hjá félaginu. Hefur hann verið orðaður við Sádi-Arabíu og MLS-deildina vestan hafs, til að mynda.

„Við vitum enn ekki hvar Mohamed mun spila á næstu leiktíð en við gætum vitað það mjög bráðlega,“ segir Abbas.

„Við munum ekki tala við félög sem Mohamed vill ekki spila fyrir. Það er ekki okkar stíll.“