433

Fimm ára gömul samfélagsmiðlafærsla um heimsmeistaramótið vekur mikla athygli - Spáði því að þetta myndi gerast í kvöld

Mynd
Getty Images

Gömul færsla á samfélagsmiðlinum X (áður Twitter) frá árinu 2021 hefur vakið mikla athygli eftir að úrslitaleikur heimsmeistaramótsins varð ljós.

Óþekktur notandi með notandanafnið @actuallyimthe skrifaði fyrir fimm árum: „Argentína var að vinna Spán 3-2 í úrslitaleik HM 2026.“

Á þeim tíma vakti færslan litla athygli en eftir að Argentína og Spánn tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum á dögunum hefur hún farið eins og eldur um sinu á samfélagsmiðlum. 

Margir hafa í gríni kallað færsluhöfundinn „tímaflakkara“ og velt því fyrir sér hvernig hann hafi getað spáð þessu.

Nú á aðeins eftir að koma í ljós hvort hann hafi alfarið rétt fyrir sér og leikurinn, sem fram fer í kvöld, fari 3-2 fyrir Argentínu.

Argentína vann 2-1 sigur á Englandi í undanúrslitunum og Spánn vann Frakkland sannfærandi 2-0. 

Lionel Messi og félagar eru ríkjandi heimsmeistarar og eru á leið í úrslitaleikinn í þriðja sinn á síðustu fjórum heimsmeistaramótum. Veðbankar telja þó að ríkjandi heimsmeistarar Spánar séu ívið sigurstranglegri í kvöld.