433

FIFA tekur upp bandaríska hefð

Mynd
Getty Images

FIFA hefur ákveðið að heimsmeistarararnir í ár fái sérstaka meistarahringi í fyrsta sinn í sögu keppninnar.

Alls verða 30 hringir afhentir sigurliði mótsins, en þetta er þekkt hefð úr bandarískum íþróttum á borð við NFL og NBA, þar sem meistaralið fá slíka hringi til minningar um titilinn.

Auk hringanna sem leikmenn og starfsfólk sigurliðsins fá verða hátt í 2 þúsund eintök framleidd til sölu fyrir stuðningsmenn.

Argentína og Spánn eigast við í úrslitaleik heimsmeistaramótsins, sem fram fer í New Jersey á sunnudagskvöldið.