Jhon Duran er á leið aftur í Evrópufótboltann en Benfica er nálægt því að semja við Al-Nassr um að fá kólumbíska framherjann.
Samkvæmt portúgalska miðlinum A Bola mun hinn 22 ára gamli Duran ganga til liðs við portúgalska félagið á lánssamningi, en Al-Nassr er tilbúið að greiða stærstan hluta af háum launum leikmannsins til að greiða fyrir félagaskiptunum.
Duran var keyptur til Al-Nassr frá Aston Villa fyrir um 70 milljónir punda í janúar 2025, en hefur ekki náð að festa sig í sessi í Sádi-Arabíu. Hefur hann þegar farið á láni til Tyrklands og Rússlands á stuttum tíma hjá Al-Nassr. Hann lék aðeins 18 leiki fyrir félagið og en fær nú tækifæri til að endurræsa ferilinn hjá Benfica.
Gert er ráð fyrir að Duran komi til Lissabon á næstu dögum til að fara í læknisskoðun og ganga frá formsatriðum áður en hann gengur formlega til liðs við Benfica.