433

Bowen heldur tryggð við West Ham og tekur slaginn í B-deildinni

Mynd
Getty Images

Jarrod Bowen, fyrirliði West Ham, ætlar að taka slaginn með liðinu í ensku B-deildinni á næstu leiktíð.

Helstu miðlar greina frá þessu og að Bowen hafi jafnframt skrifað undir breyttan samning í kjölfar falls liðsins úr úrvalsdeildinni. Er hann þó samningsbundinn 2030 eins og áður. 

Þetta eru sterk skilaboð frá hinum 29 ára Bowen og West Ham, en félagið hefur þegar selt lykilmanninn Mateus Fernandes til Tottenham á 85 milljónir punda. Fleiri lykilmenn gætu þá verið á útleið.

Bowen hefur skorað 85 mörk og lagt upp 63 í 280 leikjum fyrir West Ham. Hann skoraði sigurmarkið í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar árið 2023 og er orðinn goðsögn hjá félaginu.