Aron Einar Gunnarsson er genginn í raðir uppeldsifélagsins Þórs.
Akureyri.net greinir frá þessu og segir jafnframt að Gyrðir Hrafn Guðbrandsson sé kominn á láni frá KR.
Aron, sem er 37 ára gamall, lék síðast með Þór hluta sumars 2024, þá í Lengjudeildinni.
Liðið er sem stendur á botni Bestu deildarinnar og hefur verið í miklum vandræðum í sumar.
Ljóst er að koma Arons, sem og Gyrðis, er lyftistöng fyrir liðið.