433

Virt blað varpar sprengju eftir tap Englands - Leikmenn liðsins voru agndofa

Mynd
Getty Images

Nokkrir leikmenn enska landsliðsins voru hissa á varfærinni nálgun Thomas Tuchel undir lok leiks í 2-1 tapinu gegn Argentínu í undanúrslitum HM.

Samkvæmt Telegraph voru sumir leikmenn agnndofa yfir því þegar Tuchel brást við marki Anthony Gordon með því að skipta Ezri Konsa inn á og fara í fimm manna varnarlínu. Síðar komu Dan Burn og Nico O'Reilly einnig inn á og England freistaði þess að verja fenginn hlut.

Í grein Telegraph kemur fram að innan hópsins hafi ríkt sú tilfinning að England gæti unnið leikinn og hefði átt að halda áfram að sækja. Leikmenn hafi talið að hægt hefði verið að refsa Argentínumönnum í skyndisóknum með meiri hraða, en Bukayo Saka og Noni Madueke sátu til að mynda allan tímann á bekknum.

Lautaro Martinez, sem skoraði sigurmark Argentínu í uppbótartíma, sagði að ákvörðun Englendinga um að liggja aftar hefði hjálpað heimsmeisturunum.

„Þeir pressuðu okkur fyrstu 60 mínúturnar. Eftir markið féllu þeir til baka og við gátum verið rólegri á boltanum. Það skilaði sér að lokum í tveimur mörkum,“ sagði Martinez.

Tuchel sagðist hins vegar ekki sjá eftir neinu í viðtölum eftir leik.