Celtic hefur áhuga á markverðinum Radek Vitek hjá Manchester United.
Samkvæmt Football Insider vill þessi 22 ára gamli Tékki yfirgefa Old Trafford í leit að reglulegum spiltíma í kjölfar þess að hafa staðið sig vel á láni hjá Bristol City á síðustu leiktíð.
Vitek er samningsbundinn United í tvö ár til viðbótar en talið er að félagið sé til í að hleypa honum annað ef rétt tilboð berst, enda ekki útlit fyrir að hann eigi framtíð í rammanum á Old Trafford.
Vitek kom til United árið 2022 en hefur aldrei spilað fyrir aðalliðið.