Landsliðsþjálfararnir Thomas Tuchel og Didier Deschamps viðurkenna báðir að hvorki enska landsliðið né það franski hafi mikinn áhuga á að spila leikinn um þriðja sætið á HM, en leggja áherslu á að liðin muni sýna af sér algjöra fagmennsku.
England tapaði 2-1 gegn Argentínu í undanúrslitum og Frakkland 2-0 gegn Spáni.
„Enginn af okkar leikmönnum, né frönsku leikmönnunum, vill spila þennan leik. Allir vildu komast í úrslitaleikinn,“ sagði Tuchel.
Deschamps, sem stýrir Frökkum í síðasta sinn áður en hann lætur af störfum, tók í svipaðan streng. „Við erum ekki þar sem við vildum vera, en nú verðum við að gera allt til að enda í þriðja sæti,“ sagði Frakkinn.
Leikurinn gæti þó ráðið úrslitum í baráttunni um markakóngstitil HM. Kylian Mbappé og Lionel Messi eru efstir með átta mörk hvor, en Harry Kane og Jude Bellingham hafa skorað sex mörk og geta með góðri frammistöðu blandað sér í baráttuna.