Vestri tapaði aftur 0-3 í seinni leiknum gegn Qarabag í 1. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar í Laugardalnum í kvöld.
Fyrri leikurinn úti í Aserbaídsjan fór einnig 3-0 og því var ljóst að Vestri þyrfti kraftaverk til að snúa einvíginu við gegn liði sem fór í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð.
Jaly Mouaddib og Pedro Bicalho sáu til þess að Qarabag leiddi 0-2 í hálfleik og Zakaria Sawo innsiglaði 0-3 sigur í seinni hálfleik. Samanlögð niðurstaða einvígisins því 6-0 fyrir Qarabag.
Vestri fer nú niður í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar og mætir þar RFS frá Lettlandi. Fyrri leikurinn er ytra eftir viku.