433

Stjörnumenn sýndu karakter og flugu áfram

Mynd

Stjarnan er komin í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar eftir að hafa slegið Víkingi Götu frá Færeyjum út í kvöld.

Stjörnumenn unnu fyrri leik liðanna á Íslandi 3-1 og því í sterkri stöðu fyrir seinni leikinn ytra.

Það var markalaust eftir fyrri hálfleikinn enn á fyrsta stundarfjórðungi þess seinni skoraði Víkingur tvö mörk og jafnaði einvígið.

Þá tók Stjarnan hins vegar við sér og Birnir Snær Ingason minnkaði muninn með góðu skoti á 67. mínútu. 

Guðmundur Baldvin Nökkvason jafnaði svo og innsiglaði jafnframt 5-3 samanlagðan sigur í einvíginu á 81. mínútu.

Stjarnan fer því áfram í 2. umferð sem fyrr segir. Þar mætir liðið Ilves frá Finnlandi. Fyrri leikurinn fer fram í Garðabæ eftir slétta viku.