433

Ótrúleg tilviljun: Messi hittir rísandi stjörnu næstum 20 árum síðar og undir allt öðrum kringumstæðum

Mynd

Lionel Messi og Lamine Yamal mætast í fyrsta sinn á knattspyrnuvellinum þegar Argentína og Spánn eigast við í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í kvöld. Fyrir tæpum tveimur áratugum lágu leiðir þeirra þó saman, en við allt aðrar aðstæður.

Árið 2007 var hinn tvítugi Messi fenginn til að taka þátt í góðgerðarverkefni á vegum UNICEF og Barcelona þar sem leikmenn félagsins voru myndaðir með ungbörnum. Fyrir algjöra tilviljun var fimm mánaða gamall Lamine Yamal paraður með Messi, sem hélt á honum og baðaði hann fyrir framan myndavélarnar.

„Þetta er sannkallað kraftaverk örlaganna. Ef þetta væri í kvikmynd myndi enginn trúa þessu,“ sagði ljósmyndaarinn við BBC og rifjaði upp að Messi hefði verið feiminn og ekki alveg vitað hvernig ætti að halda á svona litlu barni.

Nú, 19 árum síðar, mætast þeir í stærsta leik sem fótboltinn hefur upp á að bjóða. Messi getur unnið sinn annan heimsmeistaratitil, en Yamal hefur tækifæri til að verða heimsmeistari aðeins 19 ára gamall.