433

Orðinn atvinnulaus eftir ömurlega uppákomu á Tenerife

Mynd
Frá Los Cristanos á Tenerife. Mynd: Wikipedia

Maikel Mesa er kannski ekki stórt nafn í fótboltaheiminum en hann kom sér í fréttirnar á Spáni í vor fyrir líkamsárás.

Mesa, sem var lykilmaður hjá spænska liðinu Tenerife þar til fyrir skömmu, réðst, ásamt tveimur öðrum mönnum, á dómara á förnum vegi á eyjunni.

Samkvæmt fréttum móðguðu þeir hann að tilefnislausu, hann svaraði lítillega fyrir sig og þá létu árásarmennirnir til skarar skríða.

Mynd

Þeir slógu manninn og hrintu niður stiga, svo dæmi séu tekin. 

Mesa játaði strax sök fyrir dómi og fékk átta mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára þar sem hann á ekki brotaferil á bakinu.

Þurfti hann þó að greiða sektir og miskabætur til þolandans. 

Mesa átti ár eftir af samningi sínum við Tenerife en félagið tilkynnti á dögunum að hann yrði ekki áfram. 

Greindi það ekki nákvæmlega frá því að dómsmálið væri ástæða þess en spænskir miðlar telja nokkuð öruggt að svo sé.

Það er spurning hvort eitthvað annað félag taki sénsinn á hinum 35 ára gamla Mesa.