433

Opnar sig eftir að hafa fengið harða gagnrýni fyrir stuðning sinn

Mynd
Kelci Bowers.

Kelci Bowers, kærasta argentínska landsliðsmannsins Marcos Senesi, hefur fengið gagnrýni eftir undanúrslitaleik Argentínu og Englands á HM vegna stuðnings síns við Argentínu.

Bowers, sem er ensk og lék áður fyrir yngri landslið Englands, hefur vakið athygli á mótinu fyrir að klæðast argentínsku landsliðstreyjunni á samfélagsmiðlum til stuðnings Senesi.

Mynd

Eftir 2-1 sigur Argentínu á Englandi fagnaði hún með kærasta sínum á vellinum en lagði jafnframt áherslu á tengsl sín við heimalandið með færslu á Instagram þar sem stóð einfaldlega: „Stolt af landinu mínu.“

Fyrir leikinn hafði Bowers viðurkennt að staðan sem hún er í væri skrýtin.

„Ég ólst upp í ensku landsliðstreyjunni og upplifði þau forréttindi að spila fyrir England, þannig að þau tengsl verða alltaf sterk,“ sagði hún.

„En þegar maki þinn er að spila einn stærsta leik ferilsins viltu auðvitað að honum gangi vel. Ég styð Marcos sem einstakling en er jafnframt afar stolt þegar ég sé England á svona stóru sviði.“

Bowers og Senesi kynntust er þau léku bæði með Bournemouth. Bowers hefur þó yfirgefið félagið og Senesesi er farinn til Tottenham.