Gary Neville hefur svarað harðri gagnrýni Cristian Romero eftir að argentíski landsliðsmaðurinn kallaði hann heimskan í kjölfar sigursins á Englandi í undanúrslitum heimsmeistaramótsins.
Romero sagði ummæli Neville fyrir leikinn hafa kveikt í sér og Lisandro Martinez, en Neville hafði lýst þeim sem „besta, versta miðvarðapari heims“.
Neville stendur hins vegar við orð sín og minnir til að mynda á að Romero hafi verið í liði sem var nálægt því að falla úr ensku úrvalsdeildinni í vor, Tottenham.
„Ég sagði líka að þeir væru ótrúlegir leikmenn. Þeir fara einfaldlega frá því að vera frábærir yfir í að gera fáránleg mistök. Romero spilaði í liði sem fékk á sig 65 mörk á síðasta tímabili, þannig að ég held ég viti alveg hvað ég er að horfa á,“ sagði Neville um málið.