433

Messi elskar að gleðja þá sem eiga um sárt að binda - „Fólk sem berst alla daga“

Mynd
Getty Images

Lionel Messi var einlægur eftir sigur Argentínu á Englandi í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í vikur.

Heimsmeistararnir unnu dramatískan 2-1 endurkomusigur og kom sigurmarkið í uppbótartíma. 

„Við vitum að heimsmeistaramótið er einstakt og það hjálpar okkur, þó ekki nema í smástund, að gleyma því sem fólk kann að vera að ganga í gegnum,“ sagði Messi meðal annars eftir leik.

„Það er fólk sem er atvinnulaust, sem á erfitt með að láta enda ná saman og berst alla daga. Við elskum að gleðja þau.“

Argentína mætir Spáni í úrslitaleiknum á sunnudag.