Liverpool hefur áhuga á japanska miðjumanninum Kaishu Sano hjá þýska félaginu Mainz, ef marka má frétt miðilsins Teamtalk.
Sano er miðjumaður sem hefur heillað í Þýskalandi og með japanska landsliðinu. Talið er að Norður-Lundúnafélögin Arsenal og Tottenham hafi einnig fylgst með honum.
Um þessar mundir er þó aðallega rætt og ritað um Liverpool í samhengi við hugsanleg félagaskipti hins 25 ára gamla Sano.
Mainz vill fá um 50 milljónir pnda fyrir Sano, sem er samningsbundinn félaginu í tvö ár til viðbótar.