433

Landsliðskona skrifar undir í Þýskalandi

Mynd
Mynd: KSÍ

Sædís Rún Heiðarsdóttir er gengin í raðir þýska liðsins Köln. 

Hin 21 árs gamla Sædís, sem er lykilmaður í varnarlínu íslenska landsliðsins, hefur verið hjá Valarenga síðan 2024 og heillað með frammistöðu sinni þar.

Nú tekur hún skrefið til Þýskalands, en Köln endaði í sjöunda sæti af fjórtán liðum í þýsku efstu deildinni á síðustu leiktíð.

Önnur landsliðskona, Sandra María Jessen, leikur einnig með Köln.