Liverpool ku hafa áhuga á brasilíska kantmanninum Rayan hjá Bournemouth.
Samkvæmt Teamtalk hefur Liverpool kannað möguleikann á að fá hinn 19 ára gamla Rayan, sem Andoni Iraola, nýr stjóri Liverpool, þekkir vel frá tíma sínum hjá Bournemouth.
Rayan skoraði fimm mörk og lagði upp tvö á síðari hluta síðustu leiktíðar og er með 130 milljóna punda klásúlu í samningi sínum. Ólíklegt þykir þó að Liverpool sé tilbúið að greiða þá upphæð.
Rayan fór með brasilíska landsliðinu á heimsmeistaramótið vestanhafs. Hann spilaði fjóra af fimm leikjum liðsins, byrjaði þar af þrjá.