433

Hvíta húsið staðfestir tíðindin

Mynd
Getty Images

Donald Trump Bandaríkjaforseti verður staddur á úrslitaleik heimsmeistaramótsins milli Spánar og Argentínu á sunnudag.

Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, staðfesti þetta og sagði Trump hlakka til að fylgjast með úrslitaleiknum.

Gianni Infantino, forseti FIFA, hefur jafnframt greint frá því að Trump muni afhenda sjálfan bikarinn eftir leikinn, ásamt Infantino.

Trump var einnig viðstaddur úrslitaleik heimsmeistaramóts félagsliða í New Jersey síðasta sumar, þar sem hann afhenti Chelsea bikarinn. Þá var harkalega baulað á hann af hluta áhorfenda.

Fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins sagði að ekki lægi fyrir hvort Trump styddi Spán eða Argentínu í úrslitaleiknum.