433

Hrafnkell og Hjörvar tókust hart á um Messi - „Ert farinn að snúa umræðunni upp í eitthvað kjaftæði, ertu í alvöru svona vitlaus?“

Mynd

Það var tekist á um Lionel Messi í þætti dagsins af hlaðvarpinu Dr. Football og þá sérstaklega hvort hann ætti skilið að fá Ballon d'Or verðlaunin í ár.

Messi er kominn í úrslitaleik HM í þriðja sinn, en hann og argentíska landsliðið eru auðvitað ríkjandi heimsmeistarar. Þeir unnu England 2-1 í gær í undanúrslitum og mæta Spáni í úrslitaleiknum á sunnudag. 

Messi hefur átta sinnum unnið Ballon d'Or, virtustu einstaklingsverðlaun heims, veitt besta leikmanni heims hverju sinni, og því var velt upp hvort hann myndi hreppa þau enn á ný ef Argentína vinnur á sunnudag. 

Hjörvar Hafliðason þáttastjórnandi benti þá hins vegar á að Messi hafi ekki skorað í síðustu leikjum, gegn Englandi og Sviss. 

„Þarf hann þá ekki að koma með mark á móti einhverju af góðu liðunum?“ spurði Hjörvar en Hrafnkell Freyr Ágústsson gaf lítið fyrir þetta.

„Nú ertu farinn að snúa umræðunni upp í eitthvað kjaftæði, ertu í alvöru svona vitlaus? Horfðir þú ekki á leikinn í gær? Hann var maður leiksins, lagði upp tvö mörk. Hann þarf ekki mark,“ sagði Hrafnkell. 

Albert Brynjar Ingason tók undir þetta. „Hann gerði helling á móti Englandi og lagði líka upp mark á móti Sviss. Hann er í fyrsta sæti í öllum tölfræðiþáttum í argentíska liðinu. Taktu Messi út úr þessu liði og hvað er þetta argentíska lið þá? Þetta er ekkert sérstakur hópur.“

Hrafnkell tók til máls á ný. „Að hann geti ekki unnið Ballon d'Or því hann er með þrjár stoðsendingar í síðustu tveimur leikjum eru mjög skrýtin rök hjá þér.“