433

HM-hetja á blaði Manchester United

Mynd
Getty Images

Manchester United hefur áhuga á Sander Berge hjá Fulham ef marka má miðilinn Teamtalk.

Hinn 28 ára gamli Berge heillaði, eins og fleiri, með norska landsliðinu á HM og United fylgist með gangi mála. 

Félagið hefur þegar tryggt sér tvo miðjumenn í sumar, þá Andrey Santos frá Chelsea og Youri Tielemans frá Aston Villa. Koma þeir í kjölfar brottfarar Casemiro og meiðsla Manuel Ugarte. Það er þó útlit fyrir að félagið gæti bætt við sig einum miðjumanni í viðbót.

Berge hefur spilað í enska boltanum undanfarin sex ár með Burnley og Sheffield United, auk Fulham. Hann er samningsbundinn Lundúnaliðinu í þrjú ár til viðótar en gæti verið fáanlegur fyrir tæpar 40 milljónir punda.