FH fór aftur á toppinn í Bestu deild kvenna í kvöld með því að pakka nýliðum Grindavíkur/Njarðvíkur saman á útivelli.
Heimakonur komust að vísu yfir snemma leiks með marki Hannah McLaughlin en skömmu fyrir hálfleik jafnaði Helena Errington fyrir gestina og Ída Marín Hermannsdóttir kom þeim svo yfir af vítapunktinum.
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir, Errington, Nia Christopher og Ragnheiður Skúladóttir bættu svo við mörkum fyrir FH í seinni hálfleik.
Lokatölur 1-6. FH er með tveggja stiga forskot á Breiðablik á toppi deildarinnar. Grindavík/Njarðvík er í sjötta sæti en tilheyrir alvöru fallpakka í neðri hluta deildarinnar. Fjögur stig skilja fimmta sætið og það tíunda og neðsta.