433

Eru til í slaginn við Liverpool - Verðmiðinn hugsanlega of hár

Mynd
Getty Images

Chelsea hefur bæst í hóp félaga sem hafa áhuga á Yan Diomande hjá RB Leipzig.

Hinn 19 ára gamli Diomande, sem var frábær í Þýskalandi á síðustu leiktíð og fór í kjölfarið með Fílabeinströndinni á HM, er eftirsóttur og hefur einnig verið orðaður við Liverpool.

Það er þó talið að RB Leipzig, sem er þekkt fyrir að þróa unga leikmenn og selja þá dýrt, vilji fá yfir100 milljónir punda fyrir hann.

Ekki er talið að Chelsea sé til í að ganga að þeim verðmiða, en Lundúnafélagið gæti boðið yfir 80 milljónir punda samt sem áður.