433

Dauðsér eftir því að hafa hunsað hann - Varð stórstjarna og milljarðamæringur eftir að hún hafnaði honum

Mynd
Polska Ssoukali.

Franski áhrifavaldurinn Polska Ssoukali segist sjá eftir því að hafa hafnað Jude Bellingham þegar enski landsliðsmaðurinn hafði samband við hana á Instagram fyrir nokkrum árum.

Ssoukali, sem er með hátt í 500 þúsund fylgjendur á Instagram og starfar einnig sem sjónvarpskona í Frakklandi, birti færslu á Snapchat þar sem hún vísaði til Bellingham og skrifaði: „Heimskulegasta fjárhagslega ákvörðunin mín.“

Samkvæmt henni sendi Bellingham henni skilaboð á samfélagsmiðlinum en hún ákvað að svara honum ekki og hafna áhuga hans. Nú, eftir að hafa séð hvert hann heufr náð, segist hún sjá eftir þeirri ákvörðun.

Bellingham hefur verið einn besti leikmaður enska landsliðsins á HM. Því miður fyrir hann tapaði liðið í undanúrslitum gegn Argentínu í vikunni og þarf að láta sér það að góðu verða að spila við Frakkland um 3. sætið á morgun.

Miðjumaðurinn er samningsbundinn Real Madrid og er sagður fá um 345 þúsund pund á viku í laun. Hann hefur undanfarna mánuði verið í sambandi með fyrirsætunni Ashlyn Castro.