433

Brasilíumaðurinn söðlar um

Mynd
Getty Images

Joao Gomes er á leið til Aston Villa frá Wolves.

Brasilíski landsliðsmaðurinn hefur yfirgefið æfingabúðir Wolves í Portúgal til að ganga frá skiptunum til Villa.

Villa greiðir Úlfunum 34 milljónir punda til að byrja með og allt að 4 milljónir til viðbótar í árangurstengdar greiðslur.

Unai Emery hefur verið í leit að miðjumanni eftir að Youri Tielemans var seldur til Manchester United og Amadou Onana varð fyrir alvarlegum hnémeiðslum með Belgíu á HM.

Atletico Madrid hafði einnig áhuga á Gomes en tapaði baráttunni við Villa.

Gomes kom til Wolves frá Flamengo árið 2023 og lék 130 leiki fyrir félagið og skoraði sjö mörk. Á síðustu leiktíð kom hann við sögu í 41 leik.