433

Baunaði á Neville og kallaði hann heimskan

Mynd
Getty Images

Cristian Romero, miðvörður Argentínu, lét Gary Neville heyra það eftir að Argentína tryggði sér sæti í úrslitum HM með 2-1 sigri á Englandi.

Í aðdraganda undanúrslitaleiksins hafði Neville lýst Romero og Lisandro Martinez sem „besta, versta miðvarðaparinu í heiminum“ og gagnrýnt varnarleik þeirra.

Romero svaraði gagnrýninni af fullum þunga.

„Það eina sem ég vona er að þegar ég hætti verði ég ekki svona heimskur. Vonandi verð ég ekki að gagnrýna leikmenn eða aðra á þennan hátt,“ sagði Romero eftir sigurinn.

„Við gerum okkar besta fyrir landsliðið. Stundum gengur það upp og stundum ekki, en við erum einfaldlega ánægðir með að vera aftur komnir í úrslitaleik HM. Við erum að skrifa söguna.“

Lisandro Martínez tók í svipaðan streng.

„Við erum vanir því að fólk tali um okkur. Það virðist hafa gaman af því. Við svörum einfaldlega inni á vellinum og gerum það alltaf af virðingu,“ sagði þessi varnarmaður Manchester United.