Arsenal ætlar að gera tilboð í Morgan Rogers eftir að HM lýkur samkvæmt helstu miðlum.
Félagið hefur þegar átt í viðræðum bæði við leikmanninn og Aston Villa og er búist við að viðræðurnar milli félaganna fari á fullt þegar Rogers snýr aftur af HM með enska landsliðinu.
Samkvæmt fréttum að utan hefur þessi 23 ára gamli leikmaður, sem getur spilað á kanti og framarlega á miðjunni, mikinn áhuga á að ganga til liðs við Englandsmeistarana.
Arsenal hefur jafnframt náð samkomulagi um kaup á kantmanninum Christos Tzolis hjá Club Brugge fyrir um 34 milljónir punda. Grikkinn kemur í stað Leandro Trossard, sem var nýlega seldur til Besiktas. Þau kaup eru óháð hugsanlegum kaupum á Rogers.