433

Ari Leifs mættur í Garðabæinn

Mynd

Ari Leifsson er genginn í raðir Stjörnunnar, en þetta var tilkynnt í kvöld.

Hinn 28 ára gamli Ari er stór og stæðilegur miðvörður sem hefur spilað í atvinnumennsku með Kolding í Noregi og Stromsgodset í Noregi undanfarin sex ár. Hann er uppalinn hjá Fylki. 

Það varð ljóst í vor að hann kæmi heim og var hann sterklega orðaður við Val. Í kvöld var hann hins vegar kynntur hjá Stjörnunni, skömmu eftir að liðið tryggði sig áfram í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar með samanlögðum 5-3 sigri á Víkingi Götu frá Færeyjum.

Stjarnan hefur valdið vonbrigðum í Bestu deildinni í sumar og er í sjöunda sæti með 15 stig eftir 14 leiki.