Xabi Alonso, nýr stjóri Chelsea, hefur látið fimm leikmenn vita að þeir eigi ekki framtíð hjá félaginu samkvæmt portúgalska miðlinum A Bola.
Leikmennirnir sem um ræðir eru markvörðurinn Filip Jörgensen, Axel Disasi, Benoit Badiashile, Alejandro Garnacho og Liam Delap.
Þeir tveir síðarnefndu komu aðeins til Chelsea síðasta sumar en náðu ekki að heilla.
Alonso, sem áður hefur stýrt Bayer Leverkusen og Real Madrid, hefur opinberlega talað um það að Garnacho sé til sölu.
Chelsea olli gífurlegum vonbrigðum og endaði um miðja deild í fyrra. Alonso ætlar að hreinsa hressilega til hjá félaginu.