West Ham óttast að missa varnarmanninn Konstantinos Mavropanos eftir fall félagsins úr ensku úrvalsdeildinni í vor.
Samkvæmt Football Insider hafa félög í ensku og þýsku úrvalsdeildinni áhuga á þessum 28 ára gamla Grikkja.
West Ham ætlar að gera allt sem í sínu valdi stendur til að halda Mavropanos fyrir átökin í B-deildinni en talið er að það geti reynst mjög erfitt.
Mavropanos er í miklum metum hjá stuðningsmönnum West Ham og var frábær á síðustu leiktíð.
Kappinn er samningsbundinn Lundúnaliðinu í tvö ár til viðbótar.