Dómstóll í Þýskalandi hefur gefið FIFA fyrirmæli um að hætta svokölluðum „villandi aðferðum“ við endursölu miða á HM.
Málið var höfðað af þýsku endursölusíðunni Ticombo, sem sakaði FIFA meðal annars um skort á gagnsæi. Dómstóllinn, sem er í Frankfurt, hefur nú úrskurðað að FIFA verði að upplýsa kaupendur um hver seljandi miða er þegar um atvinnustarfsemi er að ræða.
FIFA hefur hagnast verulega á opinberum endursölumarkaði sínum á HM. Sambandið tekur 15 prósenta þóknun bæði af kaupanda og seljanda þegar miði er seldur áfram.
Ticombo sakaði FIFA einnig um að beita villandi aðferðum, meðal annars með því að hækka verð í kaupferlinu, setja sex mínútna tímamörk á kaup og velja sjálfkrafa dýrasta sætið fyrir kaupendur.
Úrskurðurinn gildir aðeins í Þýskalandi og mun því ekki hafa teljandi áhrif á HM sem nú stendur yfir. Ticombo hyggst hins vegar halda málinu áfram í Sviss með það að markmiði að FIFA breyti verklagi sínu fyrir HM 2030.