433

Áhugi á leikmanni Barcelona í London, Manchester og víðar

Mynd
Getty Images

Marc Casado, miðjumaður Barcelona, íhugar að yfirgefa félagið í sumar vegna skorts á spiltíma og er áhugi frá Englandi.

Samkvæmt miðlinum Teamtalk hafa Chelsea, Manchester City og Manchester United sýnt hinum 22 ára gamla Casado, sem er samningsbundinn Barcelona í tvö ár til viðbótar, áhuga. 

Hann vill þó fara þangað sem hann fær pottþétt stórt hlutverk og því gætu Newcastle, Everton, Fulham og Brighton, sem einnig hafa áhuga, reynst meira spennandi .

Börsungar vilja helst halda leikmanninum en koma líklega ekki í veg fyrir að hann fari í leit að stærra hlutverki.