433

Haaland hunsaði heimsfrægan leikara sem vildi fara með honum út að borða

Mynd

Tom Holland segir Erling Braut Haaland hafa hunsað skilaboð frá sér þar sem leikarinn bauð honum út að borða.

Holland greindi frá þessu í spjallþætti Jimmy Fallon en hann sendi Haaland skilaboðin eftir að hafa séð Norðmanninn í stúkunni í Formúlu 1-kappakstrinum í Mónakó í síðasta mánuði.

Mynd

„Ég hugsaði bara að ég ætti láta vaða og senda honum skilaboð. Ekkert svar, ekki einu sinni afsökun um að hann væri upptekinn. Ekki neitt,“ sagði Holland, sem segir að upplifunin hafi verið auðmýkjandi en sennilega holl fyrir sig.

Holland er mikill knattspyrnuaðdáandi og fylgdist vel með Haaland á HM, þar sem hann og norska landsliðið heilluðu alla og fóru í 8-liða úrslit. 

„Hann er algjör goðsögn,“ sagði Holland enn fremur um Haaland, þrátt fyrir að Norðmaðurinn hafi hunsað hann.