Adam Ægir Pálsson er á förum frá Val og sagan segir að hann hafi ekki fengið að æfa með liðinu undanfarið.
Adam er greinilega ekki inni í myndinni hjá Chris Brazell, sem er tekinn við sem aðalþjálfari eftir að hafa verið aðstoðarmaður Hermanns Hreiðarssonar, sem var rekinn á dögunum.
Hinn 28 ára gamli Adam er sterklega orðaður við KA en hann hefur hins vegar æft einn undanfarið samkvæmt hlaðvarpsþættinum Innkastinu á Fótbolta.net. Athygli vekur að Brazell var þó með á þeim æfingum, samkvæmt sama þætti.
„Hann var einn að æfa með Chris Brazell og styrktarþjálfaranum,“ sagði Baldvin Már Borgarson, áður en Valur Gunnarsson tók til máls.
„Gott að þú segir þetta, þetta er bara staðreynd. Honum er bannað að æfa með liðinu og fer á aukaæfingar hjá hverjum? Þjálfara aðalliðsins!
Þeir eru með tvo menn á launum fyrir að spila ekki fótbolta fyrir liðið,“ sagði Valur og á þar við Aron Jóhannsson, sem fékk að vita það í vetur að krafta hans væri ekki lengur óskað á Hlíðarenda, þó svo að hann væri á samningi.
Það gustar vel um Val þessa dagana. Gengið innan vallar hefur verið afar dapurt og stanslausar sögur berast af málefnum utan vallar.