433

Tilkynna um andlát manns sem dæmdi um helgina - Handtekinn vegna meints kynferðisbrots í vor

Mynd

Hollenski dómarinn Rob Dieperink er látinn, aðeins 38 ára að aldri.

Hollenska knattspyrnusambandið staðfesti andlátið en dánarorsök hefur ekki verið gefin upp. Dieperink dæmdi sinn síðasta leik á laugardag.

Dieperink átti upphaflega að starfa á HM í sumar en FIFA tók hann af lista dómara eftir að hann var handtekinn í London í apríl vegna gruns um kynferðisbrot gegn unglingspilti.

Lögregla felldi málið síðar niður eftir rannsókn þar sem meðal annars var farið yfir upptökur úr öryggismyndavélum og stafræn gögn. Niðurstaðan var sú að ekki væru næg sönnunargögn til að halda málinu áfram.

Dieperink hélt fram sakleysi sínu og lýsti yfir vonbrigðum með að hafa misst af því að dæma á HM.

Hann hóf feril sinn sem atvinnudómari árið 2012, hafði dæmt í hollensku úrvalsdeildinni frá 2017 og starfaði sem VAR-dómari á EM 2024.