433

Stríð Haaland og Keane blossar upp á ný - Sakar hann um óhóflega drykkju

Mynd

Illindi milli Alf-Inge Haaland, faðir Erling Braut, og Manchester United goðsagnarinnar Roy Keane hafa blossað upp á ný eftir leik Noregs og Englands í 8-liða úrslitum á HM.

England vann leikinn 2-1 eftir framlengingu. Alf-Inge var ósáttur við dómgæsluna og skrifaði á X að Bellingham, sem skoraði mörk Englands og dómarinn ættu hrós skilið. Norðmenn voru ósáttir við allavega tvö vafaatriði í dómgæslunni.

Mynd

Roy Keane svaraði Alf-Inge í hlaðvarpinu Stick to Football og gaf í skyn að áfengisneysla Norðmannsins á leikjum gæti haft áhrif á sýn hans á dómgæsluna.

„Ef þú ert að drekka sérðu leikinn öðruvísi,“ sagði Keane. Alf-Inge svaraði ummælum hans á samfélagsmiðlum: „Eitt sinn fáviti, ávallt fáviti.“

Deilur þeirra ná aftur til ársins 1997, þegar Alf-Inge, þá leikmaður Leeds, braut á Keane þannig að hann var lengi frá vegna meiðsla. Fjórum árum síðar hefndi Keane sín með fólskulegu broti á Norðmanninum, sem þá var kominn til Manchester City.