433

Albert með svarta skýrslu af Hlíðarenda: Lýsir vonlausum starfsaðstæðum Hermanns og nefnir dæmi um það sem hann þurfti að eiga við á bak við tjöldin

Mynd

Albert Brynjar Ingason, sparkspekingurinn ástsæli, mætti með áhugaverða skýrslu um Val í hlaðvarpsþáttinn Dr. Football í gær. 

Sneri hún að Hermanni Hreiðarssyni, sem var rekinn úr þjálfarastól Vals á dögunum. Aðstoðarmaður hans, Chris Brazell, er tekinn við út tímabilið og Halldór Árnason tekur svo við til frambúðar eftir tímabil.

„Ég heyrði í einum vel tengdum Hermanni Hreiðarssyni og skýrslan er ekki góð,“ sagði Albert í Dr. Football og hélt áfram.

„Hann fékk breytileg skilaboð frá stjórninni á milli daga. Einn daginn átti hann að spila ungum leikmönnum, þann næsta snerist allt um úrslit. Afskiptasemi um val á leikmönnum. Stundum var bannað að nota hinn og þennan ef stjórnin vildi losna við þá.“

Albert, sem og aðrir meðlimir þáttarins, var svo á því að Halldór, sem gerði Breiðablik að Íslandsmeisturum árið 2024, ætti að taka við sem fyrst. 

Gengi Vals á leiktíðinni hefur verið undir væntingum og ekki hefur það batnað eftir brottför Hermanns. Liðið hefur tapað tveimur leikjum í röð, gegn ÍBV og FH.