433

United og Barcelona horfa til Þýskalands

Mynd
Getty Images

Manchester United hefur áhuga á að fá norska bakvörðinn Julian Ryerson frá Borussia Dortmund í sumar.

Samkvæmt þýskum miðlum er Ryerson á óskalista United, sem leitar að fjölhæfum bakverði sem getur leyst bæði hægri og vinstri bakvarðarstöðuna. Talið er að Dortmund sé tilbúið að láta hann fara fyrir um 30 milljónir punda.

Barcelona er einnig sagt fylgjast með stöðu 28 ára Norðmannsins, auk þess sem félög á Ítalíu hafa áhuga.

Ryerson er með norska landsliðinu á HM sem stendur og framtíð hans skýrist ekki fyrr en eftir það.